English
Forsíða  Víndeild  Tóbaksdeild  Vörulisti  Tenglar  Um RJC 
:: Eldri Fréttir
Sláðu inn leitarorð
:: Benchmark Shiraz fær 4 stjörnur á Vinotek.is
24. febrúar 2010
Benchmark Shiraz fær 4 stjörnur á Vinotek.is

Vinotek.is var að fjalla um Benchmark Shiraz og fékk vínið 4 stjörnur. Hér kemur umfjöllunin.

Þessi suður-ástralski Shiraz frá Suður-Ástralíu er í essinu sínu núna. Ég smakkaði hann í fyrra og fannst þá 2008 árgangurinn full ungur og hrár. Núna blómstrar hann hins vegar.

Þetta er þykkur og kraftmikill Shiraz á la Australía, dúndrandi lakkrís og leður, haugar af súkkulaði  í bland við súrsætan sólberjaávöxt og meira að segja smá tannín sem bíta. Þetta er nokkuð áfengt vín, heil 14,5%, sem birtist í sætri  og þægilegri "skósvertu"-angan.

En þessi Shiraz þarf svolítið kröftugan mat. Reynið með grilluðu kjöti og gjarnan BBQ-sósu og hví ekki réttum á borð við Osso  Bucco.

Frábær kaup á 1.850 krónur



Til baka

Rolf Johansen & Company - Skútuvogur 10a - 104 Reykjavík - Sími: 595 6700 - Fax: 595 6750 - Netfang: rjc@rjc.is
OZON-Vefumsjónarkerfið