Nú rétt í þessu birtist víndómur á Vinotek.is um nýtt vín hjá okkur, Bodegas Luzon og fékk það 4 stjörnur. Bodegas Luzon fæst nú í Vínbúðum þ.e. í Heiðrún, Kringlunni og Skútuvogi.
En hér kemur greinin af Vinotek.is
Þetta vín frá Luzon hefur vakið gífurlega athygli fyrir samspil verðs og gæða og var 2007 árgangurinn meðal annars valinn bestu kaup ársins af bandaríska víntímaritinu Wine Enthusiast. 2008 -vínið er síst síðra. Jumilla er svæði á suðurhluta Spánar og vínræktin er í grennd við borgina Yecla.
Luzon Jumilla 2008 er blanda úr þrúgunum Monsastrell og Syrah. Heitt, kröftugt og kryddað. Það gýs lakkrís og púðursykur upp úr glasinu í bland við kryddjurtir á borð við estragon og fennel, vínið sprittað, ávöxturinn sultaður og dökkur. Mjúkt og þykkt í munni með góðri lengd. Þetta er töluverður bolti sem þarf kröftugan mat. Tilvalið með grilluðu kjöti og bragðmiklum grillsósum. Eða hvers vegna ekki suður-ítölskum kótilettum með ólívum.
2.195 krónur