English
Forsíða  Víndeild  Tóbaksdeild  Vörulisti  Tenglar  Um RJC 
:: Eldri Fréttir
Sláðu inn leitarorð
:: Piquito 2008 fær þrjár og hálfa stjörnu á Vinotek.is
9. mars 2010
Piquito 2008 fær þrjár og hálfa stjörnu á Vinotek.is

Piquito 2008, er nýtt vín hjá okkur sem kemur úr smiðju Bodegas Luzon, en nýlega var fjallað um vín frá þeim á Vinotek.is

En sjáum hvað Steingrímur hafði að segja um Piquito 2008 á Vinotek.is

Þetta suður-spænska rauðvín kemur frá svæðinu Jumilla og einum helsta framleiðanda þess svæðis, Bodegas Luzon. Helsta þrúga Jumilla heitir Monastrell en einhverjir kunna að þekkja hana undir hinu franska nafni hennar sem er Mourvédre. Undir því nafni er hún töluvert ræktuð í suðurhluta Frakklands og m.a. gjarnan hluti þeirrar þrúgnablöndu sem er að finna í Chateauneuf-du-Pape.

Piquito 2008 leynir á sér. Það ber ekki mikið yfir sér með skrúfutappa og miða sem virðist ætlað að höfða til ferðamanna. Í glasi komið er vínið hins vegar kröftugt og suðrænt með þroskuðum og heitum, þægilega sætum berjaávexti. Þarna er vottur af lakkrís og jörð, ekki síst kemur lakkrísin fram í munni. Vel balanserað og gert.

1.690 krónur. Virkilega flott fyrir verð.



Til baka

Rolf Johansen & Company - Skútuvogur 10a - 104 Reykjavík - Sími: 595 6700 - Fax: 595 6750 - Netfang: rjc@rjc.is
OZON-Vefumsjónarkerfið