Canerock Sour

Við fengum tvo af virtustu barþjónum Íslands, Ivan Svan Corvasce og Jakob Eggertson, til að koma upp með auðveldar kokteilauppskriftir fyrir þá sem vilja búa til og njóta ljúffengra kokteila heima hjá sér.

Hér má sjá uppskrift að Canerock Sour með Canerock Rum:

Hráefni:

  • 35 ml af Canerock Rum
  • 15 ml af Dry Curacao
  • 15 ml af sykursýrópi 
  • 25 ml af ferskum límónusafa
  • 15 ml af Aqua Faba

Leiðbeiningar:

  • Hellið öllum hráefnunum í kokteilhristara ásamt klökum og hristið.
  • Sigtið í glas.
  • Skreytið með myntu og appelsínuberki.

Njótið!

Canerock Rum fæst í völdum verslunum Vínbúðarinnar: Canerock Rum